Grænn reitur á Grettisgötu- Vin í miðbænum

Grænn reitur á Grettisgötu- Vin í miðbænum

Á Grettisgötu

Points

Allt fólk hefur þörf fyrir sameiginleg græn svæði í þéttbyggðri borg. Grænum svæðum miðborgarinnar fer fækkandi. Græn svæði bjóða upp á andrými, leiki og samveru. Þannig aukast lífsgæði fólks. Þetta svæði er miðsvæðis sem getur nýst íbúum og gestum miðbæjarins. Þetta svæði er nú þegar notað þó nokkuð, sem samveru- og leiksvæði. Þörf er á að gera það upp, hirða það, setja bekki og jafnvel rólur fyrir börnin.

Hugmynd þessi var metin tæk af umhverfis- og skipulagssviði Reykjavíkurborgar. Hugmyndin fór í framhaldi fyrir hverfisráð. Lokaniðurstaðan er sú að þessi hugmynd er ein af þeim 25 sem kosið verður um í haust 2018 í þínu hverfi. Hér má sjá lista yfir þær hugmyndir sem verða til kosninga í verkefninu Hverfið mitt þann 17.- 30. október nk. www.hverfidmitt.is Í kosningunni getur þú stjörnumerkt þína uppáhalds hugmynd og gefið henni þannig tvöfalt vægi!

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information