Matarmarkaður í Laugardal

Matarmarkaður í Laugardal

Afmarka svæði í Laugardalnum fyrir matarmarkað, þar sem hægt er að setja upp sölubása fyrir matvöru frá býli og heitan mat/drykk. Möguleiki væri á að nýta landssvæðið milli Suðurlandsbrautar og Húsdýragarðs, og setja upp aðlaðandi umgjörð fyrir slíkt.

Points

Skapa líflegan vettvang fyrir bændur og aðra smærri matvælaframleiðendur til að bjóða upp á vörur sínar. Myndi mögulega hafa jákvæð áhrif á matarmenningu borgarinnar.

Hugmynd þessi var metin tæk af umhverfis- og skipulagssviði Reykjavíkurborgar. Hugmyndin fór í framhaldi fyrir hverfisráð. Lokaniðurstaðan er sú að þessi hugmynd er ein af þeim 25 sem kosið verður um í haust 2018 í þínu hverfi. Hér má sjá lista yfir þær hugmyndir sem verða til kosninga í verkefninu Hverfið mitt þann 17.- 30. október nk. www.hverfidmitt.is Í kosningunni getur þú stjörnumerkt þína uppáhalds hugmynd og gefið henni þannig tvöfalt vægi!

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information