Gangbraut og umferðastýring móts við Mánatún 1-3 og 4-6

Gangbraut og umferðastýring móts við Mánatún 1-3 og 4-6

Mikil umferð gangandi og hjólandi er yfir götuna. Þarna, er gönguleið aldraðra og fatlaðra til og frá hjúkrunarheimilinu í Sóltúni og aðalleiðin í matvöruverslun í Nóatúni. Nú er verið að ljúka við síðustu blokkina og þá eykst bílaumferðin enn. Mér finnst hættulegt á stundum að fara yfir götuna. Óska eftir að fundinn verði hentugur staður fyrir gangbraut og hugað að umferðaskiltum. Þar sem margir íbúar þarna eru ekki með tölvur sökum aldurs og fleira vona ég að þið hin veitið erindinu brautargengi.

Points

Hugmynd þessi var metin tæk af umhverfis- og skipulagssviði Reykjavíkurborgar. Hugmyndin fór í framhaldi fyrir hverfisráð. Lokaniðurstaðan er sú að þessi hugmynd er ein af þeim 25 sem kosið verður um í haust 2018 í þínu hverfi. Hér má sjá lista yfir þær hugmyndir sem verða til kosninga í verkefninu Hverfið mitt þann 17.- 30. október nk. www.hverfidmitt.is Í kosningunni getur þú stjörnumerkt þína uppáhalds hugmynd og gefið henni þannig tvöfalt vægi!

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information