Bæta við gangbraut yfir Suðurgötu sem næst Eggertsgötu

Bæta við gangbraut yfir Suðurgötu sem næst Eggertsgötu

Oft þegar fólk sem býr við Eggertsgötu ætlar að taka strætó frá strætóskýlinu hinu megin við götuna og í átt að Ægissíðu þurfum við að koma okkur hratt yfir. Þá er algjörlega úr leið að ganga eftir Suðurgötu Eggertsögu megin og að gangbrautinni sem er nær Hringbraut, því oft er strætó alveg að koma og þú hættir einfaldlega á það að missa af strætó með því að fara þessa leið yfir götuna. Vegna þessa hlaupum við gjarnan beint yfir bílagötuna þar sem engin gangbraut er fyrir hendi. Þessu væri gott að bæta úr.

Points

Hugmynd þessi var metin tæk af umhverfis- og skipulagssviði Reykjavíkurborgar. Hugmyndin fór í framhaldi fyrir hverfisráð. Lokaniðurstaðan er sú að þessi hugmynd er ein af þeim 25 sem kosið verður um í haust 2018 í þínu hverfi. Hér má sjá lista yfir þær hugmyndir sem verða til kosninga í verkefninu Hverfið mitt þann 17.- 30. október nk. www.hverfidmitt.is Í kosningunni getur þú stjörnumerkt þína uppáhalds hugmynd og gefið henni þannig tvöfalt vægi!

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information