Almenningssalerni í Elliðaárdalnum við Vatnsendaveg

Almenningssalerni í Elliðaárdalnum við Vatnsendaveg

Göngustígar frá Stekkjum niður í Elliðaárdal hjá Vatnsendavegi eru fjölfarnir og margir sem sækja í dalinn á góðviðrisdögum. Þar er auk þess staðið fyrir útileikhúsi reglulega og í hólmanum er grillaðstaða. Hvergi á svæðinu er þó hægt að komast á salerni og getur það takmarkað lengdina á dvöl í dalnum og valdið sóðaskap. Þar sem er bílastæði út frá Vatnsendavegi væri etv hægt að koma fyrir almenningssalernum (gjaldskyldum), td sem væru opin að degi til.

Points

Aðgangur að WC er nauðsynleg hvarvetna sem fólk dvelur til lengri tíma og þarna eru engin þjónustuhús sem gefa færi á slíku. Því er um þarfa þjónustu við borgarbúa að ræða.

Hugmynd þessi var metin tæk af umhverfis- og skipulagssviði Reykjavíkurborgar. Hugmyndin fór í framhaldi fyrir hverfisráð. Lokaniðurstaðan er sú að þessi hugmynd er ein af þeim 25 sem kosið verður um í haust 2018 í þínu hverfi. Hér má sjá lista yfir þær hugmyndir sem verða til kosninga í verkefninu Hverfið mitt þann 17.- 30. október nk. www.hverfidmitt.is Í kosningunni getur þú stjörnumerkt þína uppáhalds hugmynd og gefið henni þannig tvöfalt vægi!

Heitir það ekki Vatnsveituvegur ?

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information