skilgreina megin göngu og hjólaleiðir að og frá skólum

skilgreina megin göngu og hjólaleiðir að og frá skólum

Mikilvægt er að skilgreina meginleiðir gangandi og hjólandi vegfaranda. Sérstaklega að skólum og breikka þær gangstéttir, gera umhverfið aðlaðandi, halda þeim betur við þannig að hættulaust sé að ferðast þar um og setja í forgang við mokstur á stígum á veturna. Sumstaðar liggja megin gönguleiðir barna að skólum um ómalbikaða botnlanga þar sem gangandi umferð er ekki afmörkuð. Þau þurfa að klofa snjóinn á veturna og nú þegar vorar hjóla þau á hættulegum sandbornum stígum sem eru allt of þröngir til að rúma bæði gangandi og hjólandi umferð.

Points

Fagteymi sérfræðinga á umhverfis- og skipulagssviði hefur metið þessa hugmynd. Hugmyndin er ekki tæk í kosninguna í verkefninu Hverfið mitt 2018. Hugmyndinni verður komið áfram sem ábendingu til samgöngudeildar umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar. Hér má sjá lista yfir þær hugmyndir sem verða til kosninga í verkefninu Hverfið mitt þann 17.- 30. október nk. www.hverfidmitt.is Í kosningunni getur þú stjörnumerkt þína uppáhalds hugmynd og gefið henni þannig tvöfalt vægi!

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information