Undirgöng undir Sundlaugarveg og Reykjaveg

Undirgöng undir Sundlaugarveg og Reykjaveg

Tvenn undirgöng, annars vegar undir Sundlaugarveg við Laugardalslaug og hinsvegar undir Reykjaveg við Laugarnesskóla. Um er að ræða m.a. daglega göngu- og hjólaleið fjölda barna á leið í og úr Laugarnes- og Laugalækjaskóla yfir fjölfarnar umferðargötur. Aðgengi barna að skólum í nálægð við svo fjölfarnar umferðargötur ætti að vera um undirgöng en ekki gangbraut, sé þess kostur.

Points

Fagteymi sérfræðinga á umhverfis- og skipulagssviði hefur metið þessa hugmynd. Hugmyndin er ekki tæk í kosningu í verkefninu Hverfið mitt 2018 þar sem hún rúmast ekki innan fjárhagsramma verkefnisins. Hugmyndir er falla innan verkefna og valdheimilda Reykjavíkurborgar verður komið áfram sem ábendingu til viðeigandi deilda innan stjórnsýslu borgarinnar. Hér má sjá lista yfir þær hugmyndir sem verða til kosninga í verkefninu Hverfið mitt þann 17.-30. október nk. www.hverfidmitt.is Í kosningunni getur þú stjörnumerkt þína uppáhalds hugmynd og gefið henni þannig tvöfalt vægi!

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information