Hröð og mikil bílaumferð á Flókagötu - mótvægisaðgerðir

Hröð og mikil bílaumferð á Flókagötu - mótvægisaðgerðir

Hröð og mikil bílaumferð á Flókagötu - mótvægisaðgerðir

Points

Mikill fjöldi skólabarna fer um og yfir Flókagötu og gatnamótin við Gunnarsbraut og Rauðarárstíg eru mjög hættuleg. Það er bráðnauðsynlegt að setja hraðahindranir og sebrabrautir t.d. til móts við Gunnarsbraut því bílstjórar ,,gefa í" milli Snorrabrautar og Rauðarárstígs þó svo að þetta sé nú 30 km svæði í götunni. Þegar ég sá þessa hugmynd var ég nýbúin að setja inn hugmynd um að klára og laga gangstéttir við Klambratún (t.d. meðfram Flókagötu) sem tengist þessu.

Hægari umferð - betra mannlíf. Sá þessa hugmynd eftir að hafa sett inn svipaða hugmynd. Fjöldi fólks, fullorðinna og barna sækja Klambratún - á vetrum og sumrum - ekki síst þegar það verður búið að gera það æðislegt til útiveru, leikja, eða hundasamkvæma. Mikil umferð er í allt í kringum túnið og hindrar það aðkomu fólks að svæðinu. Þannig yrði FLókagata og túnið meiri heild í stað þess að vera rammað inn af hraðri bílaumferð

Á Flókagötu er óviðunandi ástand vegna mikils hraðaksturs. Nauðsynlegt er að fara í aðgerðir til að laga þetta: -Gera alla götuna að 30 km götu. -Setja hraðahindranir sem eru jafnframt merktar gangbrautir við Rauðarárstíg og Gunnarsbraut. -Setja hlykk með miðeyju eða þrengingu á móts við Kjarvalsstaði. -Leggja gangstétt meðfram Klamratúni. -Fræsa götu niður svo að bílar leggi síður upp á stétt og hraðahindrun/gangbraut sem er jafnhá stéttum sé hærri en gatna en ekki lægri.

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information