Endurbætur á leikvelli milli Staðar-, Stafna- og Stuðlasels

Endurbætur á leikvelli milli Staðar-, Stafna- og Stuðlasels

Hvað viltu láta gera? Skipta út þeim leiktækjum sem eru á staðnum eða lagfæra þau ef hægt er. . Hvers vegna viltu láta gera það? Leikvöllurinn er í óásættanlegu ástandi, m.a. hefur rennibraut verið fjarlægð. Hverfið er að yngjast upp og bara í Staðarseli einu sér búa um 10 yngri börn sem myndu njóta þess ef leikvöllurinn yrði gerður upp

Points

Einnig má lagfæra hreinsa og þrífa garðinn sem er í kringum leikvöllinn, klippa hekk og snyrta beðin með fram gangstígnum. Þessu hefur ekki verið sinnt í mörg ár.

Hugmynd þessi var metin tæk af fagteymi sérfræðinga frá umhverfis- og skipulagssviði Reykjavíkurborgar. Allar tækar hugmyndir voru í framhaldi sýndar á opnum húsum í hverfum Reykjavíkurborgar á tímabilinu 3. - 13. júní, þar var þessi hugmynd valin til þess að vera á kjörseðli þíns hverfis. Hér má sjá lista yfir þær hugmyndir sem verða til kosninga í verkefninu Hverfið mitt þann 31. október - 14. nóvember nk. www.hverfidmitt.is Í kosningunni getur þú stjörnumerkt þína uppáhalds hugmynd og gefið henni þannig tvöfalt vægi!

Óásættanlegur þessi leikvöllur.

Það þarf að sinna þessu ef þetta á standa...lítil framkvæmd sem breytir miklu

Sammála. Við fjölskyldan notum leikvöllinn mikið og það má mikið fyrir hann gera. Leiktækin eru gömul og illa farin. Einnig er ljótt veggjakrot á kastalanum sem þarf að fjarlægja. Ítreka einnig rökin með yngingu hverfisins í kring, ungar barnafjölskyldur komnar í nær öll hús í Staðarseli.

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information