Lagfæra óopinbera gönguleið barna í Langholtsskóla

Lagfæra óopinbera gönguleið barna í Langholtsskóla

Hvað viltu láta gera? Leggja gangstíg á lóð Langholtsskóla að Lóð Álfheima 2-6 og lýsa upp. Hvers vegna viltu láta gera það? Þessi óformlega gönguleið getur orðið hættuleg fyrir nemendur á leið til skóla, bæði á vetur og vor vegna hálku og drullusvaðs sem myndast á vorin. Þarna vantar lýsingu og betri göngustíg.

Points

Ég gekk í þennann skóla og get þvi talað fyrir hönd krakkana að það aukar öryggi að leggja gönguleið þarna yfir.

Þessi óformlega gönguleið getur orðið hættuleg fyrir nemendur á leið til skóla og frístundar, bæði á vetur og vor vegna hálku og drullusvaðs sem myndast á vorin. Þarna vantar lýsingu og betri göngustíg.

Tek undir það sem Bogey og Pétur nefna. Ég vil að börnin séu örugg á leið sinni í skólann.

Öryggi barna okkarr skiptir mestu máli.

Þarna keyra einnig bílar oft í gegn á morgnana sem er alls ekki nógu gott

Viljum öruggar gönguleiðir fyrir börn á leið í skóla.

Mjög lógísk leið fyrir börn sem koma frá Langholtsvegi og niður Álfheima að sleppa því að ganga fram hjá stóra bílastæðinu við Álfheimakjarnann og taka þessa leið. En þarna vantar lýsingu og betri göngustíg.

Fagteymi sérfræðinga á umhverfis- og skipulagssviði hefur metið þessa hugmynd. Hugmyndin er ekki tæk til kosningar. Ekki eru lagðir göngustígar inn á lóðir og þarna er akstur stórra bíla og því ekki öruggt svæði fyrir börn. Kosningarnar fara fram 31. október - 14. nóvember nk. á www.hverfidmitt.is

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information