Hundagerði aftan við Þróttheima

Hundagerði aftan við Þróttheima

Hvað viltu láta gera? Setja upp Hundagerði á grasbalann aftan við Þróttheima. Hvers vegna viltu láta gera það? Það er mikilvægt að geta sett hunda í lausagöngu enda ekki alltaf tími til að fara út fyrir bæinn. Hundaleyfisgjöld eru þó nokkur í Reykjavík en renna í aðra hluti en velferð hunda. Þetta svæði er ónýtt og tilkostnaður við hundagerði ekki hár.

Points

Það eru aldrei of mörg hundasvæði!!

Ef þessi tillaga verður til þess að minnka lausagöngu hunda í Laugardalnum þá væri ég til í að kjósa hana tvisvar!!

Það vantar fleiri staði þar sem er hægt að leyfa hundum að hlaupa frjálsum, þetta er upplagður staður.

Hugmynd þessi var metin tæk af fagteymi sérfræðinga frá umhverfis- og skipulagssviði Reykjavíkurborgar. Allar tækar hugmyndir voru í framhaldi sýndar á opnum húsum í hverfum Reykjavíkurborgar á tímabilinu 3. - 13. júní, þar var þessi hugmynd valin til þess að vera á kjörseðli þíns hverfis. Hér má sjá lista yfir þær hugmyndir sem verða til kosninga í verkefninu Hverfið mitt þann 31. október - 14. nóvember nk. www.hverfidmitt.is Í kosningunni getur þú stjörnumerkt þína uppáhalds hugmynd og gefið henni þannig tvöfalt vægi!

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information