Hengirúm við Vestubæjarlaug

Hengirúm við Vestubæjarlaug

Hvað viltu láta gera? Hengja upp hengirúm við Vestubæjarlaug. Hugmynda fékk ég í Poznan í Póllandi þar sem ég sá fyrirmyndina. Efniskostnaður ætti að vera frekar lítill og uppsetning einföld. Rúmin mundu hanga uppi hluta af ári eða að hægt að væri að finna efni í rúmin sem myndu ganga allt árið. Hvers vegna viltu láta gera það? Til að auka útimannlíf í Reykjavík er tilvalið að koma fyrir um 20 hengirúmum við Vestubæjarlaug. Með því er verið að búa til stað þar sem fólk getur slakað á saman. Það eru veitingasölur í kringum Vesturbæjarlaugina og verslunin Melabúðin steinsnar frá. Því verður einnig hægt að fá sér matarbita í hengirúmum eftir sundsprett.

Points

Fagteymi sérfræðinga á umhverfis- og skipulagssviði hefur metið þessa hugmynd. Hugmyndin var metin tæk til kosningar í verkefninu Hverfið mitt 2019. Einungis er hægt að stilla 25 tækum hugmyndum upp til kosninga á hverju ári. Haldin voru opin hús í hverfum borgarinnar í samstarfi við þjónustumiðstöðvar borgarinnar þar sem íbúar fengu að stilla upp kjörseðli með því að veita allt að 25 hugmyndum atkvæði sitt. Þessi hugmynd rataði því miður ekki í uppstillingu þetta árið. Hugmyndir er falla innan verkefna og valdheimilda Reykjavíkurborgar verður komið áfram sem ábendingu til viðeigandi deilda innan stjórnsýslu borgarinnar. Hér má sjá lista yfir þær hugmyndir sem verða til kosninga í verkefninu Hverfið mitt þann 31. október - 14. nóvember nk. www.hverfidmitt.is Í kosningunni getur þú stjörnumerkt þína uppáhalds hugmynd og gefið henni þannig tvöfalt vægi!

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information