Laga körfuboltavöll við Fossvogsveg

Laga körfuboltavöll við Fossvogsveg

Hvað viltu láta gera? Laga körfuboltavöllinn við Fossvogsveg. Setja nýtt undirlag (tartan) og laga allt, til þess að það sé hægt að nota hann. Hvers vegna viltu láta gera það? Völlurinn er í bylgjum og það er hvorki hægt að hlaupa eða að spila körfubolta á vellinum. Hann er svo ósléttur að á honum safnast pollar, sem tekur síðan marga daga að þorna á vellinum og ef þeir þorna þá situr alltaf drulla eftir.

Points

Tek undir þetta. Synd að það sé ekki hægt að nýta þennan völl.

Fagteymi sérfræðinga á umhverfis- og skipulagssviði hefur metið þessa hugmynd. Hugmyndin var metin tæk til kosningar í verkefninu Hverfið mitt 2019. Einungis er hægt að stilla 25 tækum hugmyndum upp til kosninga á hverju ári. Haldin voru opin hús í hverfum borgarinnar í samstarfi við þjónustumiðstöðvar borgarinnar þar sem íbúar fengu að stilla upp kjörseðli með því að veita allt að 25 hugmyndum atkvæði sitt. Þessi hugmynd rataði því miður ekki í uppstillingu þetta árið. Hugmyndir er falla innan verkefna og valdheimilda Reykjavíkurborgar verður komið áfram sem ábendingu til viðeigandi deilda innan stjórnsýslu borgarinnar. Hér má sjá lista yfir þær hugmyndir sem verða til kosninga í verkefninu Hverfið mitt þann 31. október - 14. nóvember nk. www.hverfidmitt.is Í kosningunni getur þú stjörnumerkt þína uppáhalds hugmynd og gefið henni þannig tvöfalt vægi!

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information