Endurbætur á leikvellinum í Heiðargerði

Endurbætur á leikvellinum í Heiðargerði

Hvað viltu láta gera? 1. Þangað vantar nýjar rólur og amk eina ungbarnarólu og hreiðurrólu með nýju undirlagi. 2. Á svæðinu eru tveir hólar, á annan hólinn væri hægt að setja rennibraut. 3. Bekkir og borð 4. Endurbætur á veggnum sem liggur meðfram leikvellinum. 5. Setja undirlag undir öll leiktæki. 6. Laga gróður og gras, þar sem við á. Hvers vegna viltu láta gera það? Hverfið er að yngjast en það vantar alveg endurbætur fyrir yngri kynslóðina í takt við það, leikvöllurinn er gott dæmi um hvað má betur fara.

Points

Frábær hugmynd ég er einnig búinn að vera spá í þetta hvort ekki væri hægt að laga róluvöllinn. Gróður nágrannalóðar skyggir mikið á að sól skíni seinni hluta dags þar sem rólur eru staðsettar núna. Einnig ær gróður/tré langt inn á leikvöllinn frá næstu lóðum. En góð hugmynd ég er með eina 6 ára og við myndum koma mikið oftar ef þetta væri meira aðlaðandi. KV. Helgi

Hverfið er að yngjast og ekki mikið um leikvelli. Það væri frábært að hafa góðan völl þarna.

Leikvöllurinn er sá eini sem er í boði milli Grensásvegar og Háaleitisbrautar fyrir utan skólalóðina en þar eru leiktæki sem henta aðeins börnum frá 6 ára og upp úr.

Fagteymi sérfræðinga á umhverfis- og skipulagssviði hefur metið þessa hugmynd. Hugmyndin var metin tæk til kosningar í verkefninu Hverfið mitt 2019. Einungis er hægt að stilla 25 tækum hugmyndum upp til kosninga á hverju ári. Haldin voru opin hús í hverfum borgarinnar í samstarfi við þjónustumiðstöðvar borgarinnar þar sem íbúar fengu að stilla upp kjörseðli með því að veita allt að 25 hugmyndum atkvæði sitt. Þessi hugmynd rataði því miður ekki í uppstillingu þetta árið. Hugmyndir er falla innan verkefna og valdheimilda Reykjavíkurborgar verður komið áfram sem ábendingu til viðeigandi deilda innan stjórnsýslu borgarinnar. Hér má sjá lista yfir þær hugmyndir sem verða til kosninga í verkefninu Hverfið mitt þann 31. október - 14. nóvember nk. www.hverfidmitt.is Í kosningunni getur þú stjörnumerkt þína uppáhalds hugmynd og gefið henni þannig tvöfalt vægi!

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information