Minningarskjöldur á sjávarbakkann hjá Görðum við Ægisíðu

Minningarskjöldur á sjávarbakkann hjá Görðum við Ægisíðu

Hvað viltu láta gera? Setja einhvers konar upplýsingar eða minningar um þá útgerð og athafnalíf sem stundað var frá Görðum. Sigurður Jónsson og Guðrún Pétursdóttir voru útgerðarbændur við Ægisíðu langt fram á miðja síðustu öld. Ekkert minnir á þetta fjölskrúðuga athafnalíf nema húsið Garðar og svo upplýsingaspjald við Grímstaðarvör. Hvers vegna viltu láta gera það? Það er mikilvægt að Reykvíkingar þekki rætur sínar sem meðal annars er að finna við sjávarkambinn við Ægisíðu. Þar var saltaður þorskur í salthúsinu og húsmæður af holtinu mættu jafnvel með börn sín til að breiða út saltfiskinn. Ekkert minnir á þetta.

Points

Sameinuð hugmynd Fagteymi sérfræðinga á umhverfis- og skipulagssviði hefur metið þessa hugmynd. Hugmyndin er áþekk annarri hugmynd sem kosið verður um og heitir Strandlíf hjá grásleppuskúrnum við Grímstaðavör. Hugmyndinni þinni verður vísað sem ábendingu inn í það ferli. Hér má sjá lista yfir þær hugmyndir sem verða til kosninga í verkefninu Hverfið mitt þann 31. október - 14. nóvember nk. www.hverfidmitt.is Í kosningunni getur þú stjörnumerkt þína uppáhalds hugmynd og gefið henni þannig tvöfalt vægi!

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information