Viðhald stíga og gatna í Suðurhlíðum

Viðhald stíga og gatna í Suðurhlíðum

Hvað viltu láta gera? Gera við og endurnýja yfirborð á göngustígum, opnum svæðum og vistgötum í Suðurhlíðum. Hvers vegna viltu láta gera það? Stígar og götur í hverfinu þjást af uppsafnaðri viðhaldsþörf en stórir hlutar þeirra eru beinlínis ónýtir og þarfnast viðgerða eða jafnvel algjörrar endurnýjunar. Allar íbúðagötur innan hverfisins eru að einhverju leyti hellulagðar, en malbikaðar á milli hellulagna. Hvorugt hefur verið endurnýjað að ráði frá því að hverfið byggðist og bæði koma nú mjög illa undan vetri. Hellulagnir eru upprifnar og gengnar úr skorðum eftir snjómoksturstæki og malbik orðið mjög holótt vegna veðrunaráhrifa eftir að liggja undir þykkum klakabunkum langtímum saman vegna takmarkaðs snjóruðnings. Þetta á við um hverfið í heild, jafnt götur og stíga sem og hellulagnir á opnum svæðum og leikvöllum.

Points

Aðeins 14 styðja þetta á meðan 75 vilja loka Miklubraut fyrir umferð einkabíla og hefta aðgengi að stærstu vinnustöðum og menntastofnunum landsins... Það hljóta fleiri en þetta að búa í Suðurhlíðum sem vilja geta komist til og frá heimilum sínum án hættu á slysum og skemmdum á farartækjum. Ekki síst þar sem engin verslun og þjónusta er innan hverfisins og engin tenging við almenningssamgöngur, svo aðgengi farartækja einstaklinga er hrein nauðsyn. Koma svo Suðurhlíðabúar, kjósum þetta nú upp!

Fagteymi sérfræðinga á umhverfis- og skipulagssviði hefur metið þessa hugmynd. Hugmyndin var metin tæk til kosningar í verkefninu Hverfið mitt 2019. Einungis er hægt að stilla 25 tækum hugmyndum upp til kosninga á hverju ári. Haldin voru opin hús í hverfum borgarinnar í samstarfi við þjónustumiðstöðvar borgarinnar þar sem íbúar fengu að stilla upp kjörseðli með því að veita allt að 25 hugmyndum atkvæði sitt. Þessi hugmynd rataði því miður ekki í uppstillingu þetta árið. Hugmyndir er falla innan verkefna og valdheimilda Reykjavíkurborgar verður komið áfram sem ábendingu til viðeigandi deilda innan stjórnsýslu borgarinnar. Hér má sjá lista yfir þær hugmyndir sem verða til kosninga í verkefninu Hverfið mitt þann 31. október - 14. nóvember nk. www.hverfidmitt.is Í kosningunni getur þú stjörnumerkt þína uppáhalds hugmynd og gefið henni þannig tvöfalt vægi!

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information