Hreyfistýrð bleik LED ljós fyrir stiga niður á strönd

Hreyfistýrð bleik LED ljós fyrir stiga niður á strönd

Hvað viltu láta gera? Ég vil leggja það til að setja upp bleika LED næturlýsingu á stiga niður á strönd í við Eiðisgranda sem er bara virk þegar það er myrkur. Og að þetta sé með hreyfiskynjara sem lætur lýsingu fara í gang þegar fólk er nálægt eða í stiganum. Hvers vegna viltu láta gera það? Það er gaman að komast þarna niður á strönd á öllum tímum en á veturna verður þarna dimmt. Það væri bæði skemmtilegra og öruggara ef að þarna væri falleg lýsing.

Points

Snjöll hugmynd :)

Hugmynd þessi var metin tæk af fagteymi sérfræðinga frá umhverfis- og skipulagssviði Reykjavíkurborgar. Allar tækar hugmyndir voru í framhaldi sýndar á opnum húsum í hverfum Reykjavíkurborgar á tímabilinu 3. - 13. júní, þar var þessi hugmynd valin til þess að vera á kjörseðli þíns hverfis. Hér má sjá lista yfir þær hugmyndir sem verða til kosninga í verkefninu Hverfið mitt þann 31. október - 14. nóvember nk. www.hverfidmitt.is Í kosningunni getur þú stjörnumerkt þína uppáhalds hugmynd og gefið henni þannig tvöfalt vægi!

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information