Engjasel aðalbraut

Engjasel aðalbraut

Hvað viltu láta gera? Ég vil að Engjasel verði aðalbraut og Bakkasel ,Brekkusel og Dalsel verði biðskyldugötur. Hvers vegna viltu láta gera það? Það er mjög algengt að fólk líti að Engjaselið sem aðalbraut og "svíni" fyrir umfrð frá Bakka-,Brekku -og Dalseli þess vegna. Auk þess sést ekki hvort einhver er að koma upp Brekku- og Bakkaselið ...svo þyrfti að setja sveigða spegla.

Points

Við þessa breytingu myndi umferðarhraði að öllum líkindum aukast. Þvi myndi ég vilja halda hægri réttinum. Bý innst í Engjaseli

Halda hægri rétti og bæta við hraðahindrunum. Alls ekki gera Engjaselið að aðalbraut þa eykst hraðinn sem fyrir er mikill

Góð hugmynd

Ég skil áhyggjur af þeim völdum að báðir aðilar telji sig eiga réttinn og mikilvægt að auka öryggi með því að fólk fylgji umferðarreglum. En ég er ósammála því að það sé ástæða til þess að taka réttinn af þeim sem eru að koma úr Brekkuseli, Dalseli og Bakkaseli.

Fagteymi sérfræðinga á umhverfis- og skipulagssviði hefur metið þessa hugmynd. Hugmyndin er ekki tæk í kosninguna í verkefninu Hverfið mitt 2019. Hugmyndinni verður komið áfram sem ábendingu til samgöngudeildar umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar. Hér má sjá lista yfir þær hugmyndir sem verða til kosninga í verkefninu Hverfið mitt þann 31. október - 14. nóvember nk. www.hverfidmitt.is Í kosningunni getur þú stjörnumerkt þína uppáhalds hugmynd og gefið henni þannig tvöfalt vægi!

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information