Gangbrautir við Seljaskóga

Gangbrautir við Seljaskóga

Hvað viltu láta gera? Ég myndi vilja að efri gangbrautin yrði færð innar og helst sett ljós. Hvers vegna viltu láta gera það? Of oft hafa nánast orðið slys þar sem fólk sem er að koma úr átti frá Stöng frá ljósnum og sér óvænt einhvern við gangbrautina. Bæði teppir ljósin og stofnar lífi þess gangandi í hættu. Ef gangbrautin væri færð innar væri hættan talsvert minni.

Points

Þarna liggur gönguleið við hlið Seljabrautar og beina leið að undirgöngum. Því er öryggisatriði að hafa þarna gangbraut. Helsta lausnin væri að gera gangbrautina meira sýnilega og að ökumenn stöðvi við gangbraut eins og þeim ber að gera.

Þessi tillaga styður við mína tillögu um að framlengja undirgöngin sem eru núna undir Breiðholtsbraut /eða að gera ný undirgöng undir Seljaskóga og tengja þau við gömlu undirgöngin undir Breiðholtsbraut

Fagteymi sérfræðinga á umhverfis- og skipulagssviði hefur metið þessa hugmynd. Hugmyndin var metin tæk til kosningar í verkefninu Hverfið mitt 2019. Einungis er hægt að stilla 25 tækum hugmyndum upp til kosninga á hverju ári. Haldin voru opin hús í hverfum borgarinnar í samstarfi við þjónustumiðstöðvar borgarinnar þar sem íbúar fengu að stilla upp kjörseðli með því að veita allt að 25 hugmyndum atkvæði sitt. Þessi hugmynd rataði því miður ekki í uppstillingu þetta árið. Hugmyndir er falla innan verkefna og valdheimilda Reykjavíkurborgar verður komið áfram sem ábendingu til viðeigandi deilda innan stjórnsýslu borgarinnar. Hér má sjá lista yfir þær hugmyndir sem verða til kosninga í verkefninu Hverfið mitt þann 31. október - 14. nóvember nk. www.hverfidmitt.is Í kosningunni getur þú stjörnumerkt þína uppáhalds hugmynd og gefið henni þannig tvöfalt vægi!

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information