lengja tíma á gönguljósum yfir Listabraut að Kringlu

lengja tíma á gönguljósum yfir Listabraut að Kringlu

Hvað viltu láta gera? lengja tíma á gönguljósum yfir Listabraut að Kringlu Hvers vegna viltu láta gera það? Græni karlinn staldrar alltof stutt við þannig að þörf er á að hlaupa yfir götuna eða stöðva á umferðareyju. Þetta skapar hættu, sérstaklega fyrir eldra fólk og börn á leið í Álftamýrarskóla.

Points

Það sama á við önnur gönguljós í hverfinu. Það er eins og það vanti e.t.v. þriðju stillinguna sem væri blikkandi rauður kall, sem gæfi viðvörun um að ljósið væri bráðlega að verða rautt. Frekar skrítið að vera á besta aldri og ná ekki að ganga yfir götur á grænu ljósi.

Fagteymi sérfræðinga á umhverfis- og skipulagssviði hefur metið þessa hugmynd. Hugmyndin er ekki tæk í kosninguna í verkefninu Hverfið mitt 2019. Hugmyndinni verður komið áfram sem ábendingu til samgöngudeildar umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar. Hér má sjá lista yfir þær hugmyndir sem verða til kosninga í verkefninu Hverfið mitt þann 31. október - 14. nóvember nk. www.hverfidmitt.is Í kosningunni getur þú stjörnumerkt þína uppáhalds hugmynd og gefið henni þannig tvöfalt vægi!

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information