Gangbrautir út á Granda

Gangbrautir út á Granda

Hvað viltu láta gera? Ég vil fá gangbrautir á Fiskislóð, til dæmis sirka frá Bónus yfir í Nettó, hugsanlega líka milli Nettó og Krónunnar og öðrum staðsetningum þar sem margir gangandi vegfarendur þurfa að þvera götur. Hvers vegna viltu láta gera það? Það er nokkuð um gangandi umferð í búðir og þjónustu úti á Granda, en mikil bílaumferð einnig. Það þarf að bæta öryggi gangandi vegfarenda með einhverju móti.

Points

Fagteymi sérfræðinga á umhverfis- og skipulagssviði hefur metið þessa hugmynd. Hugmyndin er ekki tæk í kosningu í verkefninu Hverfið mitt 2019 þar sem verkefnið sem um ræðir í hugmyndinni er í öðru ferli innan borgarkerfisins og því ekki hægt að kjósa um það að svo stöddu. Hugmyndinni verður vísað sem ábendingu inn í það ferli. Sjá hér: https://reykjavik.is/framkvaemdasjain/hverfid-mitt-vesturbaer-framkvaemdir-2019 Hér má sjá lista yfir þær hugmyndir sem verða til kosninga í verkefninu Hverfið mitt þann 31. október - 14. nóvember nk. www.hverfidmitt.is Í kosningunni getur þú stjörnumerkt þína uppáhalds hugmynd og gefið henni þannig tvöfalt vægi!

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information