Hvað viltu láta gera? Við gangbrautina við Árvað þarf að koma ljósastaurar beggja megin við gangbrautina því yfir veturinn þá sést ekki þegar barn vill fara yfir gangbrautina á leið út í skólabygginguna Brautarholt í Norðlingaskóla. Börnin sem búa við Selvað og Sandavað ganga fyrir þessa braut á leið í skólann. Ökumenn sjá börnin illa. Hvers vegna viltu láta gera það? Bæta öryggi gangandi vegfaranda.
Hugmynd þessi var metin tæk af fagteymi sérfræðinga frá umhverfis- og skipulagssviði Reykjavíkurborgar. Allar tækar hugmyndir voru í framhaldi sýndar á opnum húsum í hverfum Reykjavíkurborgar á tímabilinu 3. - 13. júní, þar var þessi hugmynd valin til þess að vera á kjörseðli þíns hverfis. Hér má sjá lista yfir þær hugmyndir sem verða til kosninga í verkefninu Hverfið mitt þann 31. október - 14. nóvember nk. www.hverfidmitt.is Í kosningunni getur þú stjörnumerkt þína uppáhalds hugmynd og gefið henni þannig tvöfalt vægi!
Þyrfti að vera 2 - 4 skilti með “Börn að leik” allan strætó hringinn. Umferð hefur aukist á sl. árum og fólk er ekki endilega að aka hægt hringinn, og ansi margir í símanum undir stýri.
This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation