Sparkvöllur (Maló)

Sparkvöllur (Maló)

Hvað viltu láta gera? Sparkvöllurinn sem kallaður var Maló í gamla daga, og er fyrir neðan innstu raðhúsalengjuna í Búlandi, er í mjög lélegu ástandi og hefur nú verið það um alllanga hríð. Djúpar holur hafa myndast fyrir framan öll mörk á vellinum og hann í raun hættulegur þeim börnum sem hann nota, en á sumrin er þessi völlur nánast í stöðugri notkun enda mikið af börnum í hverfinu. Sífellt dýpri holur á vellinum auka líkur á slysum en samt hefur ekkert verið gert fyrir völlinn í mörg ár. Taka þarf upp ónýtar torfur, slétta undirlag og tyrfa upp á nýtt svo ekki sé nú talað um að laga ástand markanna sem á vellinum standa. Hvers vegna viltu láta gera það? Til að auka útiveru barna í hverfinu og til að minnka líkur á því að þau slasi sig á vellinum.

Points

Fagteymi sérfræðinga á umhverfis- og skipulagssviði hefur metið þessa hugmynd. Hugmyndin var metin tæk til kosningar í verkefninu Hverfið mitt 2019. Einungis er hægt að stilla 25 tækum hugmyndum upp til kosninga á hverju ári. Haldin voru opin hús í hverfum borgarinnar í samstarfi við þjónustumiðstöðvar borgarinnar þar sem íbúar fengu að stilla upp kjörseðli með því að veita allt að 25 hugmyndum atkvæði sitt. Þessi hugmynd rataði því miður ekki í uppstillingu þetta árið. Hugmyndir er falla innan verkefna og valdheimilda Reykjavíkurborgar verður komið áfram sem ábendingu til viðeigandi deilda innan stjórnsýslu borgarinnar. Hér má sjá lista yfir þær hugmyndir sem verða til kosninga í verkefninu Hverfið mitt þann 31. október - 14. nóvember nk. www.hverfidmitt.is Í kosningunni getur þú stjörnumerkt þína uppáhalds hugmynd og gefið henni þannig tvöfalt vægi!

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information