Götuþrenging

Götuþrenging

Hvað viltu láta gera? Ég vil láta þrengja neðri hluta Stóragerðis þ.e.a.s við bensínstöðina. Það eru 2 þrengingar nú þegar í Stóragerðinu en þær duga ekki til því að bílar keyra ansi hratt alveg upp að horni Hvassaleitisskóla. Að mínu mati er þrengingin í Heiðagerðinu vel heppnuð því að þar kemst bara einn bíll í einu og svo eru 2 hindranir neðar það háar að bílar þurfa að hægja all verulega á til að skemma ekki bílana. Hvers vegna viltu láta gera það? Ég taldi um 300 bíla á 1.5 klukkutíma (há annatíma) Bílstjórar nota Stóragerðið sem styttingu inn á Miklubrautina.

Points

Fagteymi sérfræðinga á umhverfis- og skipulagssviði hefur metið þessa hugmynd. Hugmyndin var metin tæk til kosningar í verkefninu Hverfið mitt 2019. Einungis er hægt að stilla 25 tækum hugmyndum upp til kosninga á hverju ári. Haldin voru opin hús í hverfum borgarinnar í samstarfi við þjónustumiðstöðvar borgarinnar þar sem íbúar fengu að stilla upp kjörseðli með því að veita allt að 25 hugmyndum atkvæði sitt. Þessi hugmynd rataði því miður ekki í uppstillingu þetta árið. Hugmyndir er falla innan verkefna og valdheimilda Reykjavíkurborgar verður komið áfram sem ábendingu til viðeigandi deilda innan stjórnsýslu borgarinnar. Hér má sjá lista yfir þær hugmyndir sem verða til kosninga í verkefninu Hverfið mitt þann 31. október - 14. nóvember nk. www.hverfidmitt.is Í kosningunni getur þú stjörnumerkt þína uppáhalds hugmynd og gefið henni þannig tvöfalt vægi!

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information