Umferðarspegill við gatnamótin Grófarsel/Seljaskógar

Umferðarspegill við gatnamótin Grófarsel/Seljaskógar

Hvað viltu láta gera? Setja upp umferðarspegil vegna afstöðu gatnamótanna. Ef keyrt er upp Grófarsel í átt að Seljaskógum og beygja á til vinstri er oft erfitt að sjá hvort umferð sé að koma frá hægri þar sem afstaða gatnamótanna er þannig að illa sést til hægri (göturnar liggja ekki hornrétt að hvor annarri). Það myndi því auka umferðaröryggi til muna að setja spegil þarna Hvers vegna viltu láta gera það? Til að auka umferðaröryggi

Points

Fagteymi sérfræðinga á umhverfis- og skipulagssviði hefur metið þessa hugmynd. Hugmyndin er ekki tæk í kosninguna í verkefninu Hverfið mitt 2019. Hugmyndinni verður komið áfram sem ábendingu til samgöngudeildar umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar. Hér má sjá lista yfir þær hugmyndir sem verða til kosninga í verkefninu Hverfið mitt þann 31. október - 14. nóvember nk. www.hverfidmitt.is Í kosningunni getur þú stjörnumerkt þína uppáhalds hugmynd og gefið henni þannig tvöfalt vægi!

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information