hægja á umferð á Gullteig (Teigana)

hægja á umferð á Gullteig (Teigana)

Hvað viltu láta gera? Setja upp þrengingar eða loka af gamla Blómavals stæðinu út á Kringlumýrarbraut. Aðrar hugmyndir þó vel þegnar til að hægja á umferð í gegnum teigana. Hvers vegna viltu láta gera það? Allt of mikil umferð fer í gegnum gullteiginn þar sem bæði skóli og leikskóli standa við. Á álagstímum fara bílar ansi margir of hratt um þessa götu sem og á öðrum tímum. Mikil umferð hefur skapast í gegnum Hverfið og niður að Kringlumýrarbraut og öfugt þar sem margir stytta sér leið þar í gegn. Mikið er um að rútur stytti sér leið að Grand Hóteli.

Points

Fagteymi sérfræðinga á umhverfis- og skipulagssviði hefur metið þessa hugmynd. Hugmyndin er ekki tæk í kosninguna í verkefninu Hverfið mitt 2019. Hugmyndinni verður komið áfram sem ábendingu til samgöngudeildar umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar. Hér má sjá lista yfir þær hugmyndir sem verða til kosninga í verkefninu Hverfið mitt þann 31. október - 14. nóvember nk. www.hverfidmitt.is Í kosningunni getur þú stjörnumerkt þína uppáhalds hugmynd og gefið henni þannig tvöfalt vægi!

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information