Laga skápa í Breiðholtslaug

Laga skápa í Breiðholtslaug

Hvað viltu láta gera? Laga skápa í Breiðholtslaug svo þeir haldist opnir á meðan maður er að klæða sig í og úr. Eins og staðan er núna þá lokast þeir um leið og maður sleppir höndum af skápunum. Hvers vegna viltu láta gera það? Það er virkilega pirrandi að þurfa sífellt að opna skápinn á meðan maður er að brasa við að klæða sig.

Points

Ég hef því miður horft þrisvar sinnum á börn rekast harkalega í opna skápa því menn nenna ekki einu sinni að loka þeim þegar þeir eru búnir að klæða sig. Endilega lagið þá skápa sem EKKI lokast þannig að þeir lokist alltaf. Menn hljóta að geta bjargað sér nema latir séu.

Fagteymi sérfræðinga á umhverfis- og skipulagssviði hefur metið þessa hugmynd. Hugmyndin er ekki tæk til kosningar í verkefninu Hverfið mitt 2019. Hugmyndinni hefur verið komið áfram sem ábendingu, eftir eðli hugmyndar, ekki er talin þörf á að setja slíkt verkefni í kosningu. Hér má sjá lista yfir þær hugmyndir sem verða til kosninga í verkefninu Hverfið mitt þann 31. október - 14. nóvember nk. www.hverfidmitt.is Í kosningunni getur þú stjörnumerkt þína uppáhalds hugmynd og gefið henni þannig tvöfalt vægi!

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information