Breikka göngustíg á milli Skógarhlíðar og Eskihlíðar

Breikka göngustíg á milli Skógarhlíðar og Eskihlíðar

Hvað viltu láta gera? Breikka göngustíg á milli Skógarhlíðar og Eskihlíðar þannig að hjólandi, gangandi, og fólk með barnavanga eigi auðveldara með að mætast. Hvers vegna viltu láta gera það? Stígurinn mjög mikið notaður af fólki í hverfinu, ekki síst krökkum á leið í og úr Val. Stígurinn er hins vegar einbreiður og svo mjór að erfitt er fyrir t.d. hjólandi vegfarendur eða fólk með barnavagna að mætast, eða bara að mæta gangandi vegfarendum. Dæmi eru um árekstra sérstaklega hjólandi vegfarenda við gangandi. Lúið grindverk meðfram stígnum öðrum megin er auk þess slysagildra (sérstaklega fyrir börn) þegar víkja þarf fyrir vegfarendum sem koma á móti. Tilkostnaður við breikkun stígarins er að öllum líkindum lítill.

Points

Erfitt að mæta hjólandi fólki þarna.

Hugmynd þessi var metin tæk af fagteymi sérfræðinga frá umhverfis- og skipulagssviði Reykjavíkurborgar. Allar tækar hugmyndir voru í framhaldi sýndar á opnum húsum í hverfum Reykjavíkurborgar á tímabilinu 3. - 13. júní, þar var þessi hugmynd valin til þess að vera á kjörseðli þíns hverfis. Hér má sjá lista yfir þær hugmyndir sem verða til kosninga í verkefninu Hverfið mitt þann 31. október - 14. nóvember nk. www.hverfidmitt.is Í kosningunni getur þú stjörnumerkt þína uppáhalds hugmynd og gefið henni þannig tvöfalt vægi!

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information