Niðurgrafin grenndarstöð við Stórholt/Einholt

Niðurgrafin grenndarstöð við Stórholt/Einholt

Hvað viltu láta gera? Setja niðurgrafna grenndarstöð/djúpgáma við hornið á Einholti/Stórholti Hvers vegna viltu láta gera það? Grenndarstöð á þessum stað myndi auka skil á endarvinnanlegum úrgangi vegna nálægðar við verslun hverfissins. Einnig myndi þetta gera fólki kleyft að ganga með endurvinnanlegan úrgang á grenndarstöðina og minnka þörf á því að taka bílinn.

Points

Mjög góð hugmynd. Rökin eru þau að þetta myndi auka skil og einnig gæti fólk labbað með efnið í stað þess að fara í bíl á Endurvinnslustöð.

Frábært! Yrði mjög stutt fyrir okkur að fara. Mjög margir íbúar sem gætu nýtt sér þetta. Má endilega Hanna fallegt torg líka!

Fagteymi sérfræðinga á umhverfis- og skipulagssviði hefur metið þessa hugmynd. Hugmyndin er ekki tæk í kosningu í verkefninu Hverfið mitt 2018 þar sem verkefnið sem um ræðir í hugmyndinni er í öðru ferli innan borgarkerfisins og því ekki hægt að kjósa um það að svo stöddu. Hugmyndinni verður vísað sem ábendingu inn í það ferli. Hér má sjá lista yfir þær hugmyndir sem verða til kosninga í verkefninu Hverfið mitt þann 31. október - 14. nóvember nk. www.hverfidmitt.is Í kosningunni getur þú stjörnumerkt þína uppáhalds hugmynd og gefið henni þannig tvöfalt vægi!

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information