fleiri ruslatunnur

fleiri ruslatunnur

Hvað viltu láta gera? planta fleiri ruslatunnum Hvers vegna viltu láta gera það? Ég hef tekið eftir því að það er alls ekki nógu margar ruslatunnur í Árbænum t.d í selásnum, ég held að ég hafi ekki séð ruslatunnu þar og ég sé bara rusl á jörðinni. Ef við plöntum ekki fleiri ruslatunnum þá er ég hræddur um að jörðin muni hægt og rólega eyðast

Points

Er hjartanlega sammála þessari hugmynd, jörðin er að eyðast!!!

er ekki búið að setja nóg af pening í ruslatunnur nú þegar.

Sammála!! Bærinn okkar á það til að vera alltof subbulegur! Ekkert gaman að fara í göngutur i svona umhverfi!

Gleymist oft að það þarf að tæma þessar tunnur reglulega. Ekki nóg að fjölga þeim. Ruslatunnur þar sem botninn er dottinn úr og hundaskíturinn kominn út um allt er því miður of algeng sjón.

Fagteymi sérfræðinga á umhverfis- og skipulagssviði hefur metið þessa hugmynd. Hugmyndin var metin tæk til kosningar í verkefninu Hverfið mitt 2019. Einungis er hægt að stilla 25 tækum hugmyndum upp til kosninga á hverju ári. Haldin voru opin hús í hverfum borgarinnar í samstarfi við þjónustumiðstöðvar borgarinnar þar sem íbúar fengu að stilla upp kjörseðli með því að veita allt að 25 hugmyndum atkvæði sitt. Þessi hugmynd rataði því miður ekki í uppstillingu þetta árið. Hugmyndir er falla innan verkefna og valdheimilda Reykjavíkurborgar verður komið áfram sem ábendingu til viðeigandi deilda innan stjórnsýslu borgarinnar. Hér má sjá lista yfir þær hugmyndir sem verða til kosninga í verkefninu Hverfið mitt þann 31. október - 14. nóvember nk. www.hverfidmitt.is Í kosningunni getur þú stjörnumerkt þína uppáhalds hugmynd og gefið henni þannig tvöfalt vægi!

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information