Fjallarennibraut (mountaincoaster)

Fjallarennibraut (mountaincoaster)

Hvað viltu láta gera? Setja geggjaða risa rennibraut í hlíðina á Úlfarsfelli þar sem maður rennir sér á sleða á þar til gerðri braut. Brautina þyrfti að manna eins og skíðabrekkur en gæti að öllum líkindum verið opin allan ársins hring eftir því hvað veður leyfir. Til að komast í hana þyrfti fólk samt að leggja á sig smá heilsubótargöngu :) Hvers vegna viltu láta gera það? Það væri gaman að finna fleiri nýtingar á hólunum á Höfuðborgarsvæðinu og hvetja nýja markhópa til að nýta sér útivistarsvæðin.

Points

Fagteymi sérfræðinga á umhverfis- og skipulagssviði hefur metið þessa hugmynd. Hugmyndin er ekki tæk í kosningu í verkefninu Hverfið mitt 2019 þar sem hún rúmast ekki innan fjárhagsramma verkefnisins. Hugmyndir er falla innan verkefna og valdheimilda Reykjavíkurborgar verður komið áfram sem ábendingu til viðeigandi deilda innan stjórnsýslu borgarinnar. Hér má sjá lista yfir þær hugmyndir sem verða til kosninga í verkefninu Hverfið mitt þann 31. október - 14. nóvember nk. www.hverfidmitt.is Í kosningunni getur þú stjörnumerkt þína uppáhalds hugmynd og gefið henni þannig tvöfalt vægi!

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information