Nýtt undirlag á fótboltavöll við Bakkasel

Nýtt undirlag á fótboltavöll við Bakkasel

Hvað viltu láta gera? Það er fótboltavöllur á milli Bakkasels og Seljabrautar. Búið er að fjárfesta í stórum girðingum en grasið er mjög lélegt. Ég vil láta setja mjúkt undirlag sem nýtist bæði fyrir fótbolta og handbolta (mjúkbolta). Einnig væri gott að tengja völlinn við göngustíg meðfram Seljabraut. Hvers vegna viltu láta gera það? Það er nokkuð langt í lóðir grunnskólanna frá þessum velli og því tilvalið fyrir börnin (og fullorðna) að fá nothæfan leikvöll í þessum hluta hverfisins. Gott að nýta þá fjárfestingu á grindverki að gera þennan völl nothæfan.

Points

Völlur yfirleitt mjög blautur

Hugmynd þessi var metin tæk af fagteymi sérfræðinga frá umhverfis- og skipulagssviði Reykjavíkurborgar. Allar tækar hugmyndir voru í framhaldi sýndar á opnum húsum í hverfum Reykjavíkurborgar á tímabilinu 3. - 13. júní, þar var þessi hugmynd valin til þess að vera á kjörseðli þíns hverfis. Hér má sjá lista yfir þær hugmyndir sem verða til kosninga í verkefninu Hverfið mitt þann 31. október - 14. nóvember nk. www.hverfidmitt.is Í kosningunni getur þú stjörnumerkt þína uppáhalds hugmynd og gefið henni þannig tvöfalt vægi!

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information