Hvað viltu láta gera? Breyta Ásvallagaötu í einstefnu götu!! Og mögulega setja upp gjaldskyldu fyrir þá sem leggja en búa ekki á henni! Hvers vegna viltu láta gera það? Það er varla hægt að keyra í götunni án þess að skapa hættu á því að rekast á aðra bíla. Gatan er alveg nógu þröng nú þegar :-( Það sést einnig verr í gangandi vegfarendur vegna magn bíla sem leggja á báðum hliðum götunnar!
Fagteymi sérfræðinga á umhverfis- og skipulagssviði hefur metið þessa hugmynd. Hugmyndin er ekki tæk í kosninguna í verkefninu Hverfið mitt 2019. Hugmyndinni verður komið áfram sem ábendingu til samgöngudeildar umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar. Hér má sjá lista yfir þær hugmyndir sem verða til kosninga í verkefninu Hverfið mitt þann 31. október - 14. nóvember nk. www.hverfidmitt.is Í kosningunni getur þú stjörnumerkt þína uppáhalds hugmynd og gefið henni þannig tvöfalt vægi!
This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation