Þúfnahopp

Þúfnahopp

Hvað viltu láta gera? Allir krakkar hafa gaman að því að hoppa á þúfum, setja upp gúmmíhúðaða litríka steina miðsvæðis í Grafarvogi þar sem gott aðgengi er fyrir leikskólahópa að taka göngutúra að og leika sér. Staðsetning t.d. fyrir ofan Spöngina, milli Borga og Borgarvegs. Þá eru þúfnasteinarnir t.d. skemmtilegt uppbrot á gönguferð ungra barna með foreldrum upp í Spöng á leiðinni á bókasafnið eða á leiðinni í verslunarferð. Hvers vegna viltu láta gera það? Allir krakkar frá 2 til 10 ára geta ekki hætt að hoppa á milli þúfnanna ef þau prófa þetta í Hveragerði, endilega að fá þetta líka upp í Grafarvogi, helst miðsvæðis eins og segir í tillögunni þannig að leikskólar geti smellt sér í gönguferðir að litríku gúmmí þúfunum.

Points

Fagteymi sérfræðinga á umhverfis- og skipulagssviði hefur metið þessa hugmynd. Hugmyndin var metin tæk til kosningar í verkefninu Hverfið mitt 2019. Einungis er hægt að stilla 25 tækum hugmyndum upp til kosninga á hverju ári. Haldin voru opin hús í hverfum borgarinnar í samstarfi við þjónustumiðstöðvar borgarinnar þar sem íbúar fengu að stilla upp kjörseðli með því að veita allt að 25 hugmyndum atkvæði sitt. Þessi hugmynd rataði því miður ekki í uppstillingu þetta árið. Hugmyndir er falla innan verkefna og valdheimilda Reykjavíkurborgar verður komið áfram sem ábendingu til viðeigandi deilda innan stjórnsýslu borgarinnar. Hér má sjá lista yfir þær hugmyndir sem verða til kosninga í verkefninu Hverfið mitt þann 31. október - 14. nóvember nk. www.hverfidmitt.is Í kosningunni getur þú stjörnumerkt þína uppáhalds hugmynd og gefið henni þannig tvöfalt vægi!

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information