Örugg gönguleið - hitaveitustokkur

Örugg gönguleið - hitaveitustokkur

Hvað viltu láta gera? Setja gönguljós á öll gatnamót hitaveitustokks og umferðargötu. Hvers vegna viltu láta gera það? Börnum er stefnt í hættu á leið í skóla þar sem gönguleið eftir hitaveitustokk liggur yfir þrjár umferðargötur, þar af tvær fjölfarnar. Þrengingar eða hraðahindranir eru á þessum stöðum fyrir bíla en lítil börn eru samt sem áður í stórhættu við að komast í skólann. Slíkt er óásættanlegt og er forgangsmál að bæta úr áður en skólastarf hefst í haust. Göturnar sem um ræðir eru Sogavegur, Tunguvegur og Réttarholtsvegur. Jafnframt myndi þetta stórauka öryggi þeirra fjölmörgu öðru sem vilja nýta sér útivistarperluna Elliðarárdal og ganga eftir hitaveitustokknum sem er oft eina auða leiðin á veturnar.

Points

Hugmynd þessi var metin tæk af fagteymi sérfræðinga frá umhverfis- og skipulagssviði Reykjavíkurborgar. Allar tækar hugmyndir voru í framhaldi sýndar á opnum húsum í hverfum Reykjavíkurborgar á tímabilinu 3. - 13. júní, þar var þessi hugmynd valin til þess að vera á kjörseðli þíns hverfis. Hér má sjá lista yfir þær hugmyndir sem verða til kosninga í verkefninu Hverfið mitt þann 31. október - 14. nóvember nk. www.hverfidmitt.is Í kosningunni getur þú stjörnumerkt þína uppáhalds hugmynd og gefið henni þannig tvöfalt vægi!

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information