Tennisvellir í Breiðholtið

Tennisvellir í Breiðholtið

Hvað viltu láta gera? Byggja útitennisvelli sem væru opnir almenningi fyrir aftan sundlaugina. Leiknir gæti einnig komið á fót æskulýðsstarfi og haft umsjón með völlunum. Hvers vegna viltu láta gera það? Til þess að auka lífsgæði Breiðhyltinga og efla æskulýðsstarf. Tennissíþróttin er mjög vinsæl út um allan heim og er sífellt að ná meiri vinsældum á Íslandi. Svæðið fyrir aftan sundlaugina er miðsvæðis og skjólsælt, það hentar því vel fyrir vellina.

Points

Það vantar svona afþreyingu

Besta hugmyndin. Yrði mjög flott að fá þessa velli bakvð sundlaug - kýla á þetta :)

Flott hugmynd - heilsueflandi.

Fagteymi sérfræðinga á umhverfis- og skipulagssviði hefur metið þessa hugmynd. Hugmyndin var metin tæk til kosningar í verkefninu Hverfið mitt 2019. Einungis er hægt að stilla 25 tækum hugmyndum upp til kosninga á hverju ári. Haldin voru opin hús í hverfum borgarinnar í samstarfi við þjónustumiðstöðvar borgarinnar þar sem íbúar fengu að stilla upp kjörseðli með því að veita allt að 25 hugmyndum atkvæði sitt. Þessi hugmynd rataði því miður ekki í uppstillingu þetta árið. Hugmyndir er falla innan verkefna og valdheimilda Reykjavíkurborgar verður komið áfram sem ábendingu til viðeigandi deilda innan stjórnsýslu borgarinnar. Hér má sjá lista yfir þær hugmyndir sem verða til kosninga í verkefninu Hverfið mitt þann 31. október - 14. nóvember nk. www.hverfidmitt.is Í kosningunni getur þú stjörnumerkt þína uppáhalds hugmynd og gefið henni þannig tvöfalt vægi!

Tillaga að þessu hefur nú komið í nokkur ár í röð og fær fjölda atkvæða. Vonandi sér RVK sér loksins fært að koma þessu á dagskrá.

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information