Yfirbyggð hjólastæði í Mjódd

Yfirbyggð hjólastæði í Mjódd

Hvað viltu láta gera? Setja upp 2 yfirbyggð hjólastæði, eitt við hliðina á biðstöð strætó og eitt fyrir framan bakaríið (Bakarameistarinn). Stæðin bjóði uppá möguleika til að læsa hjólagrindinni við örugga grind. Einnig verði möguleiki á að hlaða rafhjól. Yfirbyggingin þarf að vera hönnuð til að skýla gegn úrkomu. Mikilvægt er að stæðin séu gagnsæ. Stæðin verði látin koma í stað bílastæða sem eru í eigu Reykjavíkurborgar. Hvers vegna viltu láta gera það? Til að veita fólki sem hjólar betri þjónustu, styðja heimsmarkmið sameinuðu þjóðanna um sjálfbærni og stuðla að heilsueflingu.

Points

Hugmynd þessi var metin tæk af fagteymi sérfræðinga frá umhverfis- og skipulagssviði Reykjavíkurborgar. Allar tækar hugmyndir voru í framhaldi sýndar á opnum húsum í hverfum Reykjavíkurborgar á tímabilinu 3. - 13. júní, þar var þessi hugmynd valin til þess að vera á kjörseðli þíns hverfis. Hér má sjá lista yfir þær hugmyndir sem verða til kosninga í verkefninu Hverfið mitt þann 31. október - 14. nóvember nk. www.hverfidmitt.is Í kosningunni getur þú stjörnumerkt þína uppáhalds hugmynd og gefið henni þannig tvöfalt vægi!

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information