Endurbætur á leikvelli á lóðinni við Kambasel 26.

Endurbætur á leikvelli á lóðinni við Kambasel 26.

Hvað viltu láta gera? Fjölga leiktækjum og laga lóðina, gera hana barnvænni og huggulegri. Hvers vegna viltu láta gera það? Á þessum reit er nægt landsvæði til að gera betur þar sem fyrir eru nokkur leiktæki en mætti gera enn betur og bæta við leiktækjum, bekkjum og fleira. Núna er þetta mest megnis grasflötur sem er ójafn og nýtist illa og er yfirleitt frekar illa hirtur. Þarf klárlega að hirða þetta svæði betur. Svæðið býður upp á gera virkilega huggulegan garð þar sem börn og fjölskyldur geta komið saman og leikið og notið saman á góðum dögum.

Points

Fagteymi sérfræðinga á umhverfis- og skipulagssviði hefur metið þessa hugmynd. Hugmyndin var metin tæk til kosningar í verkefninu Hverfið mitt 2019. Einungis er hægt að stilla 25 tækum hugmyndum upp til kosninga á hverju ári. Haldin voru opin hús í hverfum borgarinnar í samstarfi við þjónustumiðstöðvar borgarinnar þar sem íbúar fengu að stilla upp kjörseðli með því að veita allt að 25 hugmyndum atkvæði sitt. Þessi hugmynd rataði því miður ekki í uppstillingu þetta árið. Hugmyndir er falla innan verkefna og valdheimilda Reykjavíkurborgar verður komið áfram sem ábendingu til viðeigandi deilda innan stjórnsýslu borgarinnar. Hér má sjá lista yfir þær hugmyndir sem verða til kosninga í verkefninu Hverfið mitt þann 31. október - 14. nóvember nk. www.hverfidmitt.is Í kosningunni getur þú stjörnumerkt þína uppáhalds hugmynd og gefið henni þannig tvöfalt vægi!

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information