Gangbraut við Suðurver (Stigahlíðarmegin)

Gangbraut við Suðurver (Stigahlíðarmegin)

Hvað viltu láta gera? Sett verði gangbraut frá gangstéttinni í Stigahlíð yfir í Suðurver, t.d. móts við Stigahlíð 46 þar sem gangstétt tekur nú þegar við Suðurversmegin. Það er engin gangbraut yfir í Suðurver (bara merkt hraðahindrun) en flestir ganga yfir hraðahindrunina á gatnamótum Hamrahlíðar en það eru hættuleg og umferðarþung gatnamót. Auðvitað þarf síðan að fjölga gangbrautum í hverfinu almennt og bæta merkingar. Hvers vegna viltu láta gera það? Af augljósum umferðaröryggisástæðum. Ég held að margir haldi að þessi hraðahindrun á gatnamótunum sé gangbraut en það er hættulegur misskilningur. Strangt tiltekið má gangbraut vera staðsett á þessari hraðahindrun en á jafn umferðarþungum gatnamótum er skynsamlegra að staðsetja hana fjær gatnamótum.

Points

Hugmynd þessi var metin tæk af fagteymi sérfræðinga frá umhverfis- og skipulagssviði Reykjavíkurborgar. Allar tækar hugmyndir voru í framhaldi sýndar á opnum húsum í hverfum Reykjavíkurborgar á tímabilinu 3. - 13. júní, þar var þessi hugmynd valin til þess að vera á kjörseðli þíns hverfis. Hér má sjá lista yfir þær hugmyndir sem verða til kosninga í verkefninu Hverfið mitt þann 31. október - 14. nóvember nk. www.hverfidmitt.is Í kosningunni getur þú stjörnumerkt þína uppáhalds hugmynd og gefið henni þannig tvöfalt vægi!

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information