Skjólbelti upp á Vatnsenda

Skjólbelti upp á Vatnsenda

Hvað viltu láta gera? Planta sígrænu trjám Reykjavíkurmegin í Vatnsendanum Hvers vegna viltu láta gera það? Þá myndast skjól fyrir austanáttinni í Seljahverfinu sem er eina vindáttin sem plagar hverfið að vita. Auk mun þetta trjábelti með tíð og tíma vera mön og draga úr hljóðmengun frá Arnarnesveginum sem mun þvera Vatnsendann von bráðar.

Points

Fagteymi sérfræðinga á umhverfis- og skipulagssviði hefur metið þessa hugmynd. Hugmyndin var metin tæk til kosningar í verkefninu Hverfið mitt 2019. Einungis er hægt að stilla 25 tækum hugmyndum upp til kosninga á hverju ári. Haldin voru opin hús í hverfum borgarinnar í samstarfi við þjónustumiðstöðvar borgarinnar þar sem íbúar fengu að stilla upp kjörseðli með því að veita allt að 25 hugmyndum atkvæði sitt. Þessi hugmynd rataði því miður ekki í uppstillingu þetta árið. Hugmyndir er falla innan verkefna og valdheimilda Reykjavíkurborgar verður komið áfram sem ábendingu til viðeigandi deilda innan stjórnsýslu borgarinnar. Hér má sjá lista yfir þær hugmyndir sem verða til kosninga í verkefninu Hverfið mitt þann 31. október - 14. nóvember nk. www.hverfidmitt.is Í kosningunni getur þú stjörnumerkt þína uppáhalds hugmynd og gefið henni þannig tvöfalt vægi!

Frábær hugmynd, það myndast mjög oft sterkur vindstrengur ofan af rjúpnahæð sem þetta skjólbelti ætti að mynda skjól fyrir.

Endilega að halda þessari hugmynd á lofti. Búa til skjól. Styrkja Vatnsendahæð sem útivistarsvæði með sígrænum trjám syðst, lauftrjám nær byggð og svo með tíð og tíma ávaxtatrjám sem vaxa þar í skjóli. Bætir hljóðvist sem er nauðsynlegt komi til nýrra vega Temprar mengun frá umferð Dregur úr vindi Bætir vatnsbúskap Styrkir vistkerfið Til kennslu og almenns fróðleiks Til yndisauka

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information