Umferðaröryggi í mínu hverfi í Vesturbæ

Umferðaröryggi í mínu hverfi í Vesturbæ

Hvað viltu láta gera? Hringtorg á gatnamótum Ægisíðu/Hofsvallagötu frekar en umferðarljós, þarna er alltof mikill hraðakstur og færa aðeins gangbraut. Jafnvel lítið hringtorg á gatnamótum Hofsvallagötu/Neshaga og færa gönguljós. Þrengja Hofsvallagötu frá Melhaga niður að Ægisíðu, þarna geng ég daglega og ökumenn keyra í öllum ilfellum of hratt. Mæli svo með því að gera ákveðnar götur að einstefnugötum, eins og Kvisthaga og Einimel. Svo má setja hluta Hringbrautar, frá hringtorgi Suðurgötu/Hringbrautar og út á Granda í stokk neðanjarðar. Hvers vegna viltu láta gera það? Svo gangandi vegfarendur geti notið meira öryggis og fegurðar í umhverfi sínu.

Points

Fagteymi sérfræðinga á umhverfis- og skipulagssviði hefur metið þessa hugmynd. Hugmyndin er ekki tæk í kosninguna í verkefninu Hverfið mitt 2019. Hugmyndinni verður komið áfram sem ábendingu til samgöngudeildar umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar. Hér má sjá lista yfir þær hugmyndir sem verða til kosninga í verkefninu Hverfið mitt þann 31. október - 14. nóvember nk. www.hverfidmitt.is Í kosningunni getur þú stjörnumerkt þína uppáhalds hugmynd og gefið henni þannig tvöfalt vægi!

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information