Göngu/hjólabrú yfir Sæbraut við Súðarvog

Göngu/hjólabrú yfir Sæbraut við Súðarvog

Hvað viltu láta gera? Setja brú yfir Sæbrautina við Súðarvog (fyrir ofan Olís/endurvinnslustöð Sorpu) fyrir gangandi og hjólandi vegfarendur. Hvers vegna viltu láta gera það? Það er mikil umferð um Sæbrautina á þessu svæði og myndi þetta því auka öryggi allra sem fara þar um. Gangbrautin þarna er mikið notuð og ætti því brú þar yfir rétt á sér.

Points

Það eru svakalega margir túristar sem hlaupa yfir götuna á þessum stað, allan ársins hring! Þetta er sérstaklega hættulegt á veturna þegar skygni er lélegt.

Aukið öryggi. Gríðarlegur hraði bíla á þessum bút og athygli bílstjóra getur farið af gangandi/hjólandi því mikið er um að vera við þessi gatnamót, ljós, adrein og afrein.

Fagteymi sérfræðinga á umhverfis- og skipulagssviði hefur metið þessa hugmynd. Hugmyndin er ekki tæk í kosningu í verkefninu Hverfið mitt 2019 þar sem hún rúmast ekki innan fjárhagsramma verkefnisins. Hugmyndir er falla innan verkefna og valdheimilda Reykjavíkurborgar verður komið áfram sem ábendingu til viðeigandi deilda innan stjórnsýslu borgarinnar. Hér má sjá lista yfir þær hugmyndir sem verða til kosninga í verkefninu Hverfið mitt þann 31. október - 14. nóvember nk. www.hverfidmitt.is Í kosningunni getur þú stjörnumerkt þína uppáhalds hugmynd og gefið henni þannig tvöfalt vægi!

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information