Labyrinth - Hugleiðslustígur á Klambratún

Labyrinth - Hugleiðslustígur á Klambratún

Hvað viltu láta gera? Mæli með að lagður verði hugleiðslustígur/labyrinth á góðan stað á Klambratúni, sams konar og er í Laugardalnum. Hringurinn er u.þ.b. 10 - 12 metrar í þvermál og tekur því ekki mikið pláss en þarf að vera utan við frisbígolfbrautina og stærstu stíga garðsins. Í Labyrinth er aðeins ein leið sem liggur inn að miðju og svo er sama leið gengin til baka út úr hringnum. Á þessari göngu inn og út er hugleitt á ýmsan hátt, t.d. með því að fara með möntru, dvelja í núvitund eða íhuga hvaðeina. Hvers vegna viltu láta gera það? Labyrinth/hugleiðslustígur/íhugunarbraut er frábært (eldgamalt) fyrirbæri til að æfa og iðka núvitund og hugleiðslu. Við höfum sannarlega þörf fyrir allar tegundir hugleiðslu í dag og því gefur hugleiðslustígur / íhugunarbraut í almenningsgarði tækifæri til að iðka núvitund og gönguhugleiðslu úti við hvenær sem er.

Points

Fagteymi sérfræðinga á umhverfis- og skipulagssviði hefur metið þessa hugmynd. Hugmyndin var metin tæk til kosningar í verkefninu Hverfið mitt 2019. Einungis er hægt að stilla 25 tækum hugmyndum upp til kosninga á hverju ári. Haldin voru opin hús í hverfum borgarinnar í samstarfi við þjónustumiðstöðvar borgarinnar þar sem íbúar fengu að stilla upp kjörseðli með því að veita allt að 25 hugmyndum atkvæði sitt. Þessi hugmynd rataði því miður ekki í uppstillingu þetta árið. Hugmyndir er falla innan verkefna og valdheimilda Reykjavíkurborgar verður komið áfram sem ábendingu til viðeigandi deilda innan stjórnsýslu borgarinnar. Hér má sjá lista yfir þær hugmyndir sem verða til kosninga í verkefninu Hverfið mitt þann 31. október - 14. nóvember nk. www.hverfidmitt.is Í kosningunni getur þú stjörnumerkt þína uppáhalds hugmynd og gefið henni þannig tvöfalt vægi!

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information