Hvað viltu láta gera? Byggja hljóðmön meðfram Suðurlandsvegi Hvers vegna viltu láta gera það? Til að draga úr hávaða frá bílum, aukin umferð á Suðurlandsvegi veldur mikilli hljóðmengun.
Hjartanlega sammála, sá þessa sömu hugmynd fyrir ári síðan. Ég bý í Rauðás og finnst óskiljanlegt að það sé ekki löngu búið að framkvæma þetta. Mikill hávaði berst upp í hverfið með tilheyrandi truflun á svefnfriði.
Fagteymi sérfræðinga á umhverfis- og skipulagssviði hefur metið þessa hugmynd. Hugmyndin er ekki tæk í kosningu í verkefninu Hverfið mitt 2019 þar sem hún rúmast ekki innan fjárhagsramma verkefnisins. Hugmyndir er falla innan verkefna og valdheimilda Reykjavíkurborgar verður komið áfram sem ábendingu til viðeigandi deilda innan stjórnsýslu borgarinnar. Hér má sjá lista yfir þær hugmyndir sem verða til kosninga í verkefninu Hverfið mitt þann 31. október - 14. nóvember nk. www.hverfidmitt.is Í kosningunni getur þú stjörnumerkt þína uppáhalds hugmynd og gefið henni þannig tvöfalt vægi!
This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation