Hundagerði í stað malarvallar á Klambratúni

Hundagerði í stað malarvallar á Klambratúni

Hvað viltu láta gera? Það mætti breyta malarvellinum sem er á Klambratúni í hundagerði Hvers vegna viltu láta gera það? Það vantar gott og öruggt svæði í hverfið þar sem hundar geta fengið frjálsa hreyfingu í návist eigenda sinna. Malarvöllurinn er nú þegar notaður fyrir hunda hreyfingu en það væri gott að afmarka þetta svæði formlega til þess að tryggja öryggi bæði dýra og manna. Auk þess er malarvöllurinn er afar lítið notaður undir boltaíþróttir í dag.

Points

Já rökin eru komin

Fagteymi sérfræðinga á umhverfis- og skipulagssviði hefur metið þessa hugmynd. Hugmyndin er ekki tæk í kosningu í verkefninu Hverfið mitt 2019. Skipulagsferill þessa verkefnis er of langur fyrir tímaramma verkefnisins Hverfið mitt. Hugmyndinni verður komið áfram sem ábendingu til viðeigandi aðila. Hér má sjá lista yfir þær hugmyndir sem verða til kosninga í verkefninu Hverfið mitt þann 31. október - 14. nóvember nk. www.hverfidmitt.is Í kosningunni getur þú stjörnumerkt þína uppáhalds hugmynd og gefið henni þannig tvöfalt vægi!

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information