Körfuboltavellir - útikörfur

Körfuboltavellir - útikörfur

Hvað viltu láta gera? Óskum eftir körfuboltavelli með 8 góðum körfum (einni í leikskólahæð, þremur í minnibolta hæð og fjórum í fullri hæð) og góðu undirlagi þannig að börn, unglingar og aðrir geti komið saman og leikið sér úti í körfubolta. Hvers vegna viltu láta gera það? Körfubolti er fyrir alla. Löngu orðið tímabært að Grafarvogsbúar hafi aðgang að útikörfum í flotta hverfinu okkar þar sem börn, unglingar og aðrir geti komið saman og leikið sér í körfubolta. Stuðlum að útiveru og hreyfingu barna og ungmenna með því að hafa útikörfur í hverfinu okkar. Allir geta skotið á körfu og haft gaman af og fengið góða hreyfingu í leiðinni. Myndin sýnir útisvæði við íþróttahús á Sauðárkróki. Fyrirmyndar aðstaða þar sem fjölskyldur, börn og ungmenni safnast saman í leik og gleði.

Points

Það er nú þegar svipaður völlur við Rimaskóla. Hann er með stillanlegum körfum en sár vantar viðhald. Hvernig væri að laga þann völl og sinna reglulegu viðhaldi á honum áður en það er farið í að smíða nýjan?

Vantar stað fyrir krakka að leika sér i körfu. Á fleiri stöðum en við Rimaskóla

Fagteymi sérfræðinga á umhverfis- og skipulagssviði hefur metið þessa hugmynd. Hugmyndin var metin tæk til kosningar í verkefninu Hverfið mitt 2019. Einungis er hægt að stilla 25 tækum hugmyndum upp til kosninga á hverju ári. Haldin voru opin hús í hverfum borgarinnar í samstarfi við þjónustumiðstöðvar borgarinnar þar sem íbúar fengu að stilla upp kjörseðli með því að veita allt að 25 hugmyndum atkvæði sitt. Þessi hugmynd rataði því miður ekki í uppstillingu þetta árið. Hugmyndir er falla innan verkefna og valdheimilda Reykjavíkurborgar verður komið áfram sem ábendingu til viðeigandi deilda innan stjórnsýslu borgarinnar. Hér má sjá lista yfir þær hugmyndir sem verða til kosninga í verkefninu Hverfið mitt þann 31. október - 14. nóvember nk. www.hverfidmitt.is Í kosningunni getur þú stjörnumerkt þína uppáhalds hugmynd og gefið henni þannig tvöfalt vægi!

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information