Klifursteinn fyrir krakka og fullorðna

Klifursteinn fyrir krakka og fullorðna

Hvað viltu láta gera? Setja 1-2 flotta tilbúna klifur,,steina" á Klambratún fyrir börn og fullorðna til þess að æfa sig í að klifra, styrkja líkamann og hafa gaman. Þetta er víða í Evrópu sem hluti af ,,hverfisleiktækjum" líkt og kastalar og sandkassar. Hvers vegna viltu láta gera það? Skemmtileg utandyra afþreying sem hvetur börn og fullorðna til að gera eitthvað skemmtilegt og heilbrigt saman. Gæti kveikt á heilbrigðu áhugamáli eins og klifri og meiri útiveru. Notalegt að fara með börn og unglinga og þau spreyta sig á klifurleiðunum á meðan að fullorðnir geta einnig tekið þátt eða notið þess að fylgjast með og hvetja áfram. Eflir elju og þrautseigju að takast á við mismunandi klifurleiðir, finna út bestu leiðina til að nálgast verkefnið og frábær tilfinning að sigra leiðina :)

Points

Fagteymi sérfræðinga á umhverfis- og skipulagssviði hefur metið þessa hugmynd. Hugmyndin var metin tæk til kosningar í verkefninu Hverfið mitt 2019. Einungis er hægt að stilla 25 tækum hugmyndum upp til kosninga á hverju ári. Haldin voru opin hús í hverfum borgarinnar í samstarfi við þjónustumiðstöðvar borgarinnar þar sem íbúar fengu að stilla upp kjörseðli með því að veita allt að 25 hugmyndum atkvæði sitt. Þessi hugmynd rataði því miður ekki í uppstillingu þetta árið. Hugmyndir er falla innan verkefna og valdheimilda Reykjavíkurborgar verður komið áfram sem ábendingu til viðeigandi deilda innan stjórnsýslu borgarinnar. Hér má sjá lista yfir þær hugmyndir sem verða til kosninga í verkefninu Hverfið mitt þann 31. október - 14. nóvember nk. www.hverfidmitt.is Í kosningunni getur þú stjörnumerkt þína uppáhalds hugmynd og gefið henni þannig tvöfalt vægi!

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information