Laga körfuboltavöll á milli Fjarðarás og Malarás

Laga körfuboltavöll á milli Fjarðarás og Malarás

Hvað viltu láta gera? Fá Sport court körfuboltavöll með góðu undirlagi, góðum körfum og lýsingu í Selásinn. Svona völlur hefur verið settur upp í Kópavogi, Garðabæ, Hafnarfirði, Sauðárkróki og Reykjanesbæ við góðar undirtektir. Staðsetning á ónýta og ónýtta leiksvæðinu á milli Malarás og Fjarðarás. Hvers vegna viltu láta gera það? Körfubolti er holl og skemmtileg hreyfing fyrir fólk á öllum aldri sem hægt er stunda einn/ein eða í hópi og myndi þetta koma með fleiri valmöguleika á svæðinu til að hreyfa sig og hafa gaman. Aðstaðan til að stunda íþróttina í hverfinu er ekki boðleg og tími til að breyta því. Enginn hefur gaman að spila á skakka, netlausa, staka körfu á lélegu undirlagi.

Points

Fagteymi sérfræðinga á umhverfis- og skipulagssviði hefur metið þessa hugmynd. Hugmyndin var metin tæk til kosningar í verkefninu Hverfið mitt 2019. Einungis er hægt að stilla 25 tækum hugmyndum upp til kosninga á hverju ári. Haldin voru opin hús í hverfum borgarinnar í samstarfi við þjónustumiðstöðvar borgarinnar þar sem íbúar fengu að stilla upp kjörseðli með því að veita allt að 25 hugmyndum atkvæði sitt. Þessi hugmynd rataði því miður ekki í uppstillingu þetta árið. Hugmyndir er falla innan verkefna og valdheimilda Reykjavíkurborgar verður komið áfram sem ábendingu til viðeigandi deilda innan stjórnsýslu borgarinnar. Hér má sjá lista yfir þær hugmyndir sem verða til kosninga í verkefninu Hverfið mitt þann 31. október - 14. nóvember nk. www.hverfidmitt.is Í kosningunni getur þú stjörnumerkt þína uppáhalds hugmynd og gefið henni þannig tvöfalt vægi!

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information