Bætt aðkoma gangandi vegfarenda að Kjarvalsstöðum

Bætt aðkoma gangandi vegfarenda að Kjarvalsstöðum

Hvað viltu láta gera? Ég mundi gjarnan vilja sjá betri aðkomu að Kjarvalsstöðum fyrir gangandi vegfarendur sem koma í safnið frá Flókagötu. Núverandi aðkoma er gerð fyrir bíla en ekki fyrir þá sem koma gangandi úr þessari átt. Hvers vegna viltu láta gera það? Það gerir aðkomuna vænlegri fyrir gangandi, ekki eins mikil slagsíða á bíla og bílaumferð og nú er

Points

Fagteymi sérfræðinga á umhverfis- og skipulagssviði hefur metið þessa hugmynd. Hugmyndin er ekki tæk í kosninguna í verkefninu Hverfið mitt 2019. Hugmyndinni verður komið áfram sem ábendingu til samgöngudeildar umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar. Hér má sjá lista yfir þær hugmyndir sem verða til kosninga í verkefninu Hverfið mitt þann 31. október - 14. nóvember nk. www.hverfidmitt.is Í kosningunni getur þú stjörnumerkt þína uppáhalds hugmynd og gefið henni þannig tvöfalt vægi!

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information