Hringurinn

Hringurinn

Hvað viltu láta gera? Á auða svæðið neðst milli Lambasels og Klyfjasels væri flott að útbúa hellulagt torg þar sem fólk getur sest niður og notið umhverfisins og útsýnis til Esjunnar. Í miðju torgsins yrði gosbrunnur, stytta, eða bara tré!! Snyrta þarf líka svæðið fyrir neðan næst gangstéttinni við Jaðarselið. Algengt er að fólk gangi þarna um Jaðarselið og taki svokallaðan Seljahring, einnig eru þarna tíðar ferðir strætisvagna og án efa myndi fegrun þessa svæði gleðja augu margra sem þarna fara um daglega! Það er algerlega komið á tíma að snyrta þetta svæði, þannig að það sé ekki hverfinu og borginni til skammar. Hvers vegna viltu láta gera það? Fegra Seljahverfið og gleðja íbúana og aðra vegfarendur í leiðinni!

Points

Fagteymi sérfræðinga á umhverfis- og skipulagssviði hefur metið þessa hugmynd. Hugmyndin var metin tæk til kosningar í verkefninu Hverfið mitt 2019. Einungis er hægt að stilla 25 tækum hugmyndum upp til kosninga á hverju ári. Haldin voru opin hús í hverfum borgarinnar í samstarfi við þjónustumiðstöðvar borgarinnar þar sem íbúar fengu að stilla upp kjörseðli með því að veita allt að 25 hugmyndum atkvæði sitt. Þessi hugmynd rataði því miður ekki í uppstillingu þetta árið. Hugmyndir er falla innan verkefna og valdheimilda Reykjavíkurborgar verður komið áfram sem ábendingu til viðeigandi deilda innan stjórnsýslu borgarinnar. Hér má sjá lista yfir þær hugmyndir sem verða til kosninga í verkefninu Hverfið mitt þann 31. október - 14. nóvember nk. www.hverfidmitt.is Í kosningunni getur þú stjörnumerkt þína uppáhalds hugmynd og gefið henni þannig tvöfalt vægi!

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information